Norð Vestur, björgunarsaga
Norð Vestur rekur atburðarrás björgunaraðgerða á Flateyri eftir að mikið snjóflóð féll á bæinn aðfaranótt 26. október árið 1995. Áður en aðstoð barst Flateyringum voru þeir einir í nærri fimm klukkustundir að leita, finna og grafa upp nágranna sína, vini og ættingja - og skipuleggja aðgerðir. Margar hindranir voru í vegi björgunarsveita úr nágrannabyggðum og af landinu öllu, bæði veðurofsi og snjóflóðahætta. Snjóflóðið reyndist eitt mannskæðasta snjóflóð á Íslandi og markaði árið 1995 tímamót í hamfarasögu landsins, en alls fórust 35 manns í flóðum það ár.
Þessi einstæði atburður er mörgum í fersku minni, en frá honum segja yfir 40 einstaklingar; heimafólk frá Flateyri, aðstandendur, björgunar- og fjölmiðlafólk og fjöldi þjóðþekktra Íslendinga. Einnig segja sögu sína einstaklingar sem lentu í flóðinu og voru grafnir undir snjó í allt að níu klukkustundir.
Aðstandendur og starfslið
-
Leikstjórn
-
Handrit
-
Stjórn kvikmyndatöku
-
Klipping
-
Tónlist
-
Aðalframleiðandi
-
Hljóðhönnun
-
Stafrænar tæknibrellur
Um myndina
-
FlokkurHeimildamynd
-
Frumsýnd22. október, 2010, Bíó Paradís
-
Lengd100 mín.
-
TungumálÍslenska
-
TitillNorð Vestur, björgunarsaga
-
Alþjóðlegur titill66/23 North West, The Day of the Avalanche
-
Framleiðsluár2010
-
FramleiðslulöndÍsland
-
KMÍ styrkurJá
-
UpptökutækniHD
-
Myndsnið16:9
-
LiturJá
-
HljóðStereo
Fyrirtæki
-
Framleiðslufyrirtæki
-
Styrkt af